Árið 2011
Leitarbox

Global Warming
Um mig
Snilldar flash síður
Áfengi og ýmislegt tengt því
Tenglar
01.05.2011 18:41:49 / Maríanna

Jamm

Bíllinn minn er aftur að bila en ég fer með hann í viðgerð á morgun. Fór í bíó í dag með litlu systu en það var boðið frítt í bíó á akranesi ut af 1 Maí. Við sáum bara hálfa mynd því að í hléinu þá var systir mín svo óþolinmóð að bíða eftir að kveikt yrði á myndinni aftur að hún vildi bara fara heim svo að við fórum heim. Það var verið að sýna Alfa Og Omega og rosalega mikið af fólki og krökkum í bíó enda frítt inn.
Jamm hef ekki meira að segja í bili, er ennþá að leita mér að íbúð í rvk, finn hana vonandi bráðum.
Kveðja
Maríanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2011 20:33:43 / Maríanna

Gleðilegt Sumar! og Páska

Jæja núna eru að koma páskar og ég fæ smá páskafrí.. er búin að vera í fríi í dag og er í fríi á morgun en svo er ég að vinna á laugardaginn en svo aftur 2 daga frí á sunnudag og mánudag.. bara næs og borða páskaeggið auðvitað á sunnudaginn.
Ég er ennþá að leita að íbúð í rvk.. það gengur hægt ekki mikið framboð á ódýrum stúdíóíbúðum og þær sem koma fara fljótt... Svo þarf ég líka að finna stað þar sem ég má vera með kettina, vil ekki láta lóga þeim.. mér þykir svo vænt um greyin.
Skoðaði herbergi um daginn í Breiðholtinu.. 25 þúsund á mánuði, rafmagn, hiti og internet innifalin. 2 stelpur voru að leita að meðleigjenda... þær búa í íbúðinni og en þar sem þetta er í fjölbýli og má ekki vera með dýr þarna þá gat ég ekki farið þangað, það herbergi er farið nuna. En ég gefst ekki upp.. mun finna eitthvað. Þangað til verð ég í íbúðinni á akranesi.
Ég elska nýjustu seríuna hjá Steindin Okkar bara snilld. Endilega koma með hugmyndir ef þið viljið sjá eitthvað hérna á síðunni... sem vantar
Kveðja
Maríanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2011 22:35:41 / Maríanna

Já alltof langt síðan...

Já, það er alltof langt síðan ég bloggaði seinast. So I decided to write one now.
Ég er að vinna hjá Europris og er að leigja stúdíó íbúð á Akranesi, ætla reyndar að flytja í rvk bráðum þar sem það er ansi dýrt að keyra á milli. Það er föstudagskvöld núna og ég er heima, frekar þreytt eftir daginn. Vaknaði snemma fyrir vinnuna, kl 8, lagði af stað kl 9 og var mætt kl 10. Það er rosalega mikill snjór úti, samt ekki eins mikill og var í gær haha.
Ég var mikið að spá að fara á djammið áðan, keypti mér bjór og Mojhito en ég hef ekki alveg orkuna í það marr. Ég ætla að vera duglegri við að blogga, hérna og á hinni síðunni.
Lífið er yndislegt og hafið það gott
Kveðja
Maríanna :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2010 17:23:56 / Maríanna

Yey það er komið sumar :D

Loksins komið sumar.. sem er awesome. Já ég er komin með 241 aðdáendur eða (like) á síðuna mín M.V.G á facebook sem er awesome :d en þar kem ég með efni sem ég er að gera eins og myndir sem ég hef teiknað, 3D Art myndir, ljósmyndir sem ég hef tekið af náttúrunni og dýrum og svona og myndbönd sem ég hef gert og komið með brot úr báðum bókunum mínum :)

En já rosalega gott veður í dag marr... vaknaði um hádegið, fór heim til ömmu.. ég gisti hjá mömmu í nótt, var að passa litlu systu og svo fór ég heim til ömmu og fékk mér að borða og ég og amma fórum í búðina að versla.. ég átti engan pening svo ég keypti ekki neitt. Svo ákvað ég að fara í sund og hringdi í Söndru vinkonu mína og þá voru hún og Eva á leiðinni í sund.. svo að ég fór í sund og hitti þær þar. Vorum aðeins í nuddpottinum. Þær nenntu ekki að vera lengi svo þær fóru eftir sirka 10 min eftir að ég kom. Svo synti ég 40 bringusundsferðir og það var mjög hressandi. Ég get ekki synt skriðsund því ég fæ sinadrátt í fæturnar af því og er líka ekkert sérlega góð í að synda skriðsund.  Svo fór ég í heitasta pottinn sem er 41 gráður og var þar í 5 min og fór svo upp úr. Fékk ekkert smá mikinn lit. Og svo rölti ég út í búð að kaupa ís handa mér og ömmu og það var rosa næs  að sitja út á svölum í sólinni að borða ís :D

Kveðja
Maríanna Vestmann





» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2010 14:07:25 / Maríanna

jams

úff.. hvað ég er þreytt... síðustu tvær nætur hef ég bara náð að sofa í 3 eða 4 tíma :s.... gat ekki sofnað fyrr en kl 3 á sunnudagsnóttina og vaknaði kl hálf 10 og fór í ræktina og sund.. svo var ég að passa litlu systu seinustu nótt og fór að sofa hálf 3 um nóttina en systir þurfti endilega að vakna þegar ég var að fara að sofa svo að ætli ég hafi ekki sofnað svona kl hálf 4.. vaknaði svo kl hálf 7 og þá var systir komin fram.. ég lagði mig til klukkan 7 og fór svo á fætur og lét systu klæða sig og borða og svona.. gerði nestið fyrir hana og hún fór í skólan 20 min í 8... þá keyrði ég heim og slakaði aðeins á.. og sofnaði í 10 min.. fór svo upp í Skagastaði að vinna í bókunum mínum...
Fór aftur heim kl 12 og borðaði hádegismat og horfði á nágranna og svo bara eitthvað chill :) ætla kannski að leggja mig á eftir... úff


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2010 14:44:40 / Maríanna

Sveppi - Dagur í lífi Stráks

Já.. í gær fór ég í rvk með Rannveigu frænku, stelpunum hennar og litlu systu minni... lögðum af stað svona hálf 15 og vorum komin í rvk kl 15... ég ætlaði að ná í leggings og hálsmen sem ég hafði gleymt hjá vinkonu minni í rvk.. og ég rataði ekki alveg til hennar.. og við vorum í Árbæ að reyna finna húsið þar sem hún átti heima.. fékk heimilisfangið hjá henni og svona, hún reyndi að leiðbeina okkur í símanum en við villtumst bara eitthvað og vorum ekki að finna þetta...
Svo frænka mín gafst upp á að leita að þessu og við fórum heim til vinkonu hennar og vorum þar í dágóðan tíma, stelpurnar léku sér og við fengum okkur vöfflur og kökur í kaffinu :)
Svo fórum við og við vorum að fara í leikhús klukkan 18, við ætluðum í Kringluna fyrst að rölta aðeins þar en klukkan var orðin 17 svo að við höfðum ekki tíma og keyrðum bara niðrí bæ.
Fórum í Íslensku Óperuna en þar var leikritið sýnt... fórum á leikritið Sveppi - dagur í lífi stráks.
Ég og frænka keyptum að drekka í afgreiðslunni þegar við komum en svo þegar við komum inn í salinn þá sagði strákur sem var að vinna þarna, við okkur að það mætti ekki vera með drykki inni í salnum. Og ég var með kristal í glerflösku sem var búið að opna fyrir mig og ég vissi ekkert hvað ég ætti að gera við það, svo ég fór fram og talaði við konuna sem var að vinna í fatahenginu og bað hana um að geyma þetta fyrir mig og hún sagðist setja þetta upp í hillu þarna frammi... Frænka mín setti bara svalanna sem hún keypti fyrir stelpurnar í veskið sitt, sem betur fer voru þær ekki búnar að opna þá.
Svo settumst við niður.. vorum 5 svo við fengum heila röð fyrir okkur sem var næs... það var skipt sætunum þannig það voru bara 5 sæti í röð.. og við vorum frekar framalega.. bara ein röð fyrir framan okkur sem var næs.
Svo áður en leikritið byrjaði heyrðist í hátalaranum.. vinsamlegast slökkvið á símanum og velkomin í Íslensku Óperuna.. og svo þegar sýningin var að byrja sagði systir mín við mig allt í einu:
,,Heyrðiru ekki hvað hann sagði? Þú átt að slökkva á símanum."
Ég var alveg: ,,Róleg Sigurrós, ég er búin að setja hann á silent."
þá sagði hún: ,,Þá getur enginn hringt í þig!"
Ég: ,,Jú, það er alveg hægt en ég bara heyri það ekki."
hún: ,,Ó!"

Stelpurnar hlógu mikið að leikritinu og mér fannst frekar fyndið þegar systir mín spurði stundum, eins og þegar Sveppi var að pissa þarna bakvið tjaldið, hvort hann væri að gera þetta í alvörunni.

svo þegar það kom hlé, spurði systir hvort þetta væri búið og ég sagði, nei, það er bara hlé.. og við fórum með stelpurnar á klóstið og þær kepptust við að drekka svalanna sína svo og ég reyndi að finna Kristalinn minn en fann hann hvergi :s.. það var alveg fullur salurinn af fólki og krökkum... þannig það var ekki auðvelt að komast þarna um.

Svo var seinnihlutinn af leikritinu líka mjög skemmtilegur.. en ég vil ekki segja hvað gerðist, svona ef að þið hafið ekki séð það :) en ég er alveg viss um að það komi á dvd...

Jæja leikritið var búið um kl 20 og við fórum aftur upp á Akranes og vorum komnar þangað um 21 leitið. Borðuðum kvöldmatinn þá.. vorum allar alveg að deyja úr hungri.. ekki búnar að borða neitt nema nammi á leikritinu...
En jæja verð að hætta nuna.. er að fara í bíó með litlu systu á Drekamyndina.. teiknimyndina sem er sýnd hérna á Akranesi í bíóhöllinni núna kl 16... það verður vonandi gaman :) ég hef jafngaman að teiknimyndum og litla systir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2010 16:43:03 / Maríanna

Jams

Já, ég er ennþá atvinnulaus og það er frekar leiðinlegt. En ég reyni bara að hafa eitthvað að gera. Fékk bréf frá Norðuráli í dag en ég sótti um sumarafleysinga starf hjá þeim og í bréfinu stóð að því miður fékk ég ekki vinnuna að þeir séu búnir að ráða í allar stöður og þeir fengu vel yfir 650 umsóknir!!! Ekkert smá mikið marr... Sem sýnir bara alveg stöðuna í dag.
Allir að slást um að fá vinnu... well ég er að taka þátt í verkefni sem vinnumálastofnun og Rauði Krossinn er með á Akranesi sem heitir eitthvað Ungt fólk eitthvað, man það ekki eins og er.
En við settum þarna upp aðstöðu sem heitir nú Skagastaðir og þetta er svona hugmyndasmiðja fyrir atvinnulausa, þar sem við getum unnið með okkar hugmyndir og áhugamál og hugsanlega fengið vinnu útfrá því :)
Við eigum að mæta þarna í minnsta kosti 4 tíma á viku til að geta fengið bætur.

Ég er að vinna í bókunum mínum, skrifa handrit að stuttmyndaþætti og svo er ég að gera 3D Art myndir í tölvunni... búin að vera vinna að þessu undanfarna daga :) það væri næs líka að hafa græjur til að geta málað og teiknað og svona bara listasmiðju en ég hef verið að dunda mér við það að mála heima.

Svo þá daga sem ég fer ekki í Skagastaði, þá fer ég í sund og ræktina og svo er ég að hjálpa mömmu mikið þessa daganna með litlu systu, var að passa hana seinustu helgi og er að fara passa hana næstu daga á meðan mamma er að vinna. :)

Kveðja
Maríanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2010 00:34:30 / Maríanna

Skiptir það máli?

lol verð bara að koma með eitt áður en ég fer að sofa... kýkti aðeins á einkamal by the way 17.000 manns búinn að skoða síðuna mína þar :o en já var að skoða profilinn hjá einum gaur og þar tók hann fram að hann væri með hreina sakaskrá hehe :D eins og það skipti máli... well 2 af mínum ex kærastar...

well þeir höfðu báðir lennt í fangelsi for somthing im not saying.. tala nu ekki um að ég þurfti að sækja annan upp á löggustöð einu sinni eftir að hann hafði verið handtekinn fyrir líkamsáras á skaganum á írsku dögum :p hehe... öss en málið er það að ég dæmi ekki gaura fyrir fortíðina... það er alltaf hægt að breytast... ég vil trúa því... :) svo hvort sem það er hreint sakavottorð eða ekki... skiptir ekki máli fyrir mig... nema kannski gaurinn hafi drepið manneskju það er svona frekar ófyringefanlegur hlutur nema kannski að það hafi verið óvart.. :p

fannst bara fyndið að sjá þetta á profil... er með hreint sakavottorð lol... hehehe.... so then u know he is really a good guy...

just because no one has ever got him in the action... doing somthing really bad... allir eiga sínar dökku hliðar.. bara mismiklar...

ég meina hvorugur af þesum fyrrverendum kærustum mínum gerði neitt við mig.. til að skaða mig... þó þeir hafi gert eitthvað í fortíðinni þýðir ekki að þeir muni ráðast á næstu manneskju.. fólk gerir mistök og það þarf bara að læra af mistökum sínum...

En já... frekar að birta þetta hér en á facebook.. þvi ur því verður of langur status hehe... sem enginn nennir að lesa :s
well im off good night


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2010 15:01:32 / Maríanna

Jams

Þetta er fínt... tvö deit með sitthvorum gaurnum, tvo daga í röð.... já fínt...
Deitið í gær... fórum á myndina Alice In Wonderland, mjög skemmtileg mynd... var í rvk allan daginn, vinkona mín Eva kom með og já það var mjög gaman en skelfilega var ég þreytt eftir að ég kom heim og fór loksins að sofa um 3 um nóttina og var samt alltað vakna eitthvað og meikaði ekki að vakna um morguninn vegna þreytu og fór þess vegna ekki í ræktina og sund. En ó well... það kemur dagur á eftir þessum.. svo er farið að loga ljós í bílnum mínum.. sem samkvæmt bókinni þýðir að það sé vatn eða raki í bensíntankinum... þarf að kaupa frostvara í næsta mánuð og setja í bensínið. :)
Kveðja
Maríanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2010 19:44:53 / Maríanna

Jæja nóg að gera

Jæja...  Ég er ennþá atvinnulaus, eins og margir aðrir en Vinnumálastofnun setti fyrir skömmu, allt ungt atvinnulaust fólk á Akranesi í námskeið sem kallast Frumkvöðlanámskeið.


Þetta námskeið á að hjálpa okkur sem eru atvinnulaus, með því að sjá möguleikana í hvað hægt er að gera og nýta sér. Við eigum að vinna eins og við værum að búa til fyrirtæki og lærum þar af leiðandi hvað þarf til þess að byggja upp fyrirtæki og þannig. Þetta er 3 vikna prógram og vika nr 2 er að enda hjá okkur núna... Og þetta er búið að ganga mjög vel.


Við í hópnum mínum erum með bónstöð... og erum að vinna í því að gera heimassíðu og bæklinga og svo framvegis, nema þetta er auðvitað bara hugmynd. Við erum ekki að fara gera þetta að raunveruleika, well ekki svo ég viti hehe...


Hérna er linkur inn á hjá RÚV þar sem þeir eru að tala um mikilvægi Frumkvöðlanámskeiðsins... 


http://http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item224922/

Hvet ykkur til að skoða þetta.... En jæja ég er að fara á fund leikfélagsins hérna á Akranesi núna... svo ég kvef ykkur í sinni...
Kveðja
Maríanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2010 16:12:25 / Maríanna

Avatar

Fór á myndina Avatar í gær og vá bara snilldar mynd :D algjört möst að sjá í bíó og hún var í 3D :D Bara awesome.
Frábær gæði og vel gerð mynd.
Kveðja
Maríanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2009 22:38:17 / Maríanna

Tíminn er verðmætur

Í dag er 21.Október 2009. Klukkan er nákvæmlega 22:38.
Þessi dagur, og þessi tími kemur aldrei aftur. Á morgun verður þessi dagur bara einn enn dagur af fortíðinni. Og ef það var eitthvað sem þig virkilega langaði til að gera eða segja í dag... þá verður það of seint á morgun, af því þessi dagur er þá búinn.
Ef þú vilt ekki verða einn af þeim sem situr heima hjá sér um 50 aldurinn og sérð eftir svo mörgum hlutum sem þú hefðir getað gert, hefðir getað sagt og svo framveigis, þá segi ég að þú eigir að gera eitthvað í því.
Tíminn er núna! Ekki á morgun, ekki í næstu viku eða næsta ári. Þú ert hérna núna!
Láttu drauma þína rætast í dag! Ekki fresta því til morgundagsins, því þá muntu aldrei gera það!
Hvað með' það þó þú sért skíthrædd/ur við að gera eða segja það sem þig langar virkilega til að gera, þú munt sjá eftir því ef þú gerir það ekki.
Hver mínóta skiptir máli.
Ég veit hvernig það er að fara að sofa og óska þess að ég hefði gert eitthvað allt annað í dag... óskað þess að ég hefði gert þessa hluti og sagt þessa hluti eða ekki gert þessa hluti og ekki sagt þessa hluti.
Það er ekki hægt að breyta fortíðinni. En það er hægt að breyta framtíðinni. Maður má ekki lifa í fortíðinni.
Það lagar ekkert. Það er framtíðin sem maður á eftir að lifa sem maður þarf að huga að... það er nákvæmlega dagurinn í dag sem skiptir máli. Það er eini tíminn sem skiptir máli, það er þessi tími sem þú ert að upplifa nákvæmlega núna.
Svo að hættu að sóa tíma þínum í hluti sem þú vilt ekkert sérstaklega gera, hættu að vorkenna sjálfum þér. Lifðu fyrir daginn í dag og gerðu það sem þig dreymir um.
Kveðja
Maríanna



» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2009 18:46:39 / Maríanna

Allt sem við gerum og hugsum hefur áhrif á líf okkar og allra í kringum okkur.

Er lífið erfitt? Ertu stöðugt að hafa áhyggjur af því hvað gæti gerst og ertu endalaust að hugsa um allt það neikvæða í lífi þínu og hvað u hefur þurft að ganga í gegnum.
Hættu því.
Hver hugsun okkar hefur áhrif... á okkur, aðra og hvernig þú upplifir hlutina. Ef þú pælir í því... þá býr orka í öllum hlutum... þar af leiðandi býr mikil orka í okkur og alveg eins og það sem við segjum og gerum hefur áhrif á allt í kringum okkur, þá gera hugsanir okkar það líka.
Ef við hugsum endalaust um það slæma í lífinu, þá verður erfitt fyrir okkur að njóta lífsins... hvernig er hægt að vera hamingjusamur ef maður hugsar endalaust um allt sem gerir mann og gæti gert mann óhamingjusama? Það er ekki hægt.
En það er hægt að breyta þessu. Það er hægt að snúa blaðinu við... fara hugsa jákvætt hugsa um allt það góða sem u hefur í lífi þínu og ef u átt við vandamál að stríða hugsaðu þá út í hvað u getur gert til að leysa það vandamál.
Sjáðu fyrir þér í huganum, það líf sem u vilt lifa og trúðu því að þú eigir það skilið.
Ég veit af persónulegri reynslu að það gerir ekkert gott að hugsa neikvætt og sökkva sér niður í ótta og áhyggjur. Og ég veit hversu erfitt það er að snúa þeirri hugsun við... það getur tekið ár eða mánuði... bara ekki gefast upp... það virkilega dregur árángurinn á langinn... belive me... Og u verður líka að trúa á sjálfann þig og treysta því að það verður allt í lagi. Þú getur breytt lífi þínu til góðs, strax í dag. Ef það koma upp aðstæður þar sem þér finnst mjög erfitt að hugsa jákvætt... reyndu þá að finna út hvað u getur gert til að gera aðstæðurnar aðeins jákvæðari... Bara það að brosa til fólks, getur bæði bjargað deginum þínum og annarra...
Allt sem við gerum og hugsum hefur áhrif á líf okkar og allra í kringum okkur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2009 01:10:44 / Maríanna

ekki láta óttann stjórna þér

Ég er hrædd... ég flý inn í myrkrið... ég er hrædd við að segja þetta... hrædd við að gera þetta.... og þess vegna forðast ég að gera það og segja það og læt óttann stjórna lífi þínu...
Þetta er staðreynd... ég og fullt af öðru fólki er hrætt við fullt af hlutum.
Spurningin er bara sú...:
Ætlaru að láta óttann stjórna þér? Æltaru að leyfa óttanum að ráða þínu lífi... hvað þú gerir og segir? ÆTLARU AÐ VERA AUMINGI ALLT ÞITT LÍF?
Já ég segi Aumingi.. því að ótti er bara tilfinning... ótti er þarna til að takast á við hann... en maður verður að geta greint mun á góðum ótta og slæmum...
Góður ótti er dæmi eins og vera hræddur við að stökkva fram af fjalli í sjóinn... sá ótti er af því að u veist að u átt eftir að slasa þig ef þú gerir það.
Það sem ég er að tala um er tilfinningalegur ótti... ótti við að vera þú, ótti við að segja og gera það sem þér langar til... af hverju ertu hrædd/ur við það? af því af ótta við hvað öðrum finnst um það sem u segir og gerir... að það sé rangt, að u sért að fara gera mistök... af því það er erfitt... kemur með fullt af afsökunum. Hættu bara að pæla í því og gerðu það! Feisaðu tilfinningalegan óttan þinn... því hann heldur þér í fangelsi... tilfinningalegu fangelsi... að leyfa óttanum að ráða lífi þínu, well þú gætir alveg eins verið í fangelsi... ef u leyfir óttanum að ráða lífi þínu þá ertu að setja sjalfann þig í fangelsi.
Ekki gera það. Ég veit hvernig  það er... ég er búin að gera það allt of lengi og það hefur engan vegin gert mér neitt gott... Ég er farin að feisa óttann.. takast á við hann...
En ekki nóg. Hér eftir geri ég meira af því...
Og hér eftir mun ég tala um ýmisleg svona málefni sem skipta máli... það skiptir máli að láta ekki óttann stjórna sér. Ekki halda þér í tilfinningalegu fangelsu vegna ótta við að segja það sem þig langar að segja við fólk og gera það sem u vilt. Láttu drauma þína rætast.... stígðu yfir hindranirnar... segðu fokk you við óttann sem hindrar þig í að vera hamingjusamur.
Kveðja
Maríanna
Endilega commenta



» 2 hafa sagt sína skoðun

28.08.2009 23:13:53 / Maríanna

Hell yea!

vá er í svo mega stuði marrrrrrrrr...............
Bara 2 dagar eftir til að vinna á Hótel Búðum og svo flyt ég upp á Akranes aftur á þriðjudaginn :D yea.... cant wait to meet my fucking sexy boyfriend on that day... hell yea....
Oh hvað mig langar í alcahol...... BOOOS!!!!! but aint got no money :( get some on thirsday... yea
SO changing to blue like always.....
U might think im crazy and ur right! IM SO FUCKING CRAZY ITS AWESOME... yeah!
kv.
Maríanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21
Heimsóknir
Í dag:  54  Alls: 92951
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Leitarbox

Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 1 maí
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti